• Vörumerking á IceFish 2026

    Vörumerking á IceFish 2026

    Vörumerking · Fréttir

    Vörumerking á IceFish 2026

    Vörumerking á IceFish 2026

    Vörumerking tekur þátt í sjávarútvegssýningunni IceFish 2026, sem fram fer í Fífunni í Kópavogi dagana 22.–24. september 2026.

    Á sýningunni kynnir Vörumerking fjölbreyttar merkingarlausnir fyrir sjávarútveg og fiskeldi sem styðja við rekjanleika, skilvirkni og gæði í framleiðslu og pökkun sjávarafurða.

    Vörumerking leggur ríka áherslu á hraða, sveigjanlega og áreiðanlega þjónustu og vinnur náið með viðskiptavinum að því að finna lausnir sem henta hverju verkefni. Hvort sem um er að ræða daglegar merkingarþarfir eða sérhæfðar lausnir, er markmiðið ávallt að veita faglega ráðgjöf og framúrskarandi þjónustu.

    Á IceFish verður Vörumerking á sameiginlegum bás með Samhentum og Formum, þar sem gestir geta einnig kynnt sér heildarlausnir Samhenta fyrir sjávarútveg og matvælaframleiðslu, þar á meðal umbúðir, pökkunarvélar, vélbúnað, sjálfvirknilausnir og EPS-fiskikassa.

    Við hlökkum til að taka á móti gestum á bás F-20.
    Sjáumst á IceFish 2026!

    Hafðu samband

    Finndu réttu lausnina.

    Við aðstoðum þig við að velja merkingar og umbúðir sem henta vörunni þinni.

  • Vörumerking hefur tekið yfir rekstur Sigurplasts frá og með 1. janúar 2026.

    Vörumerking hefur tekið yfir rekstur Sigurplasts frá og með 1. janúar 2026.

    Vörumerking · Fréttir

    Vörumerking hefur tekið yfir rekstur Sigurplasts frá og með 1. janúar 2026.

    Vörumerking hefur tekið yfir rekstur Sigurplasts frá og með 1. janúar 2026.

    Vörumerking hefur tekið yfir rekstur Sigurplasts frá og með 1. janúar 2026.

    Sigurplast var stofnað árið 1960 og hefur um áratuga skeið sérhæft sig í framleiðslu á blásnum PET- og HDPE-flöskum. Með sameiningu Sigurplasts við Vörumerkingu skapast sterkari rekstrargrundvöllur, aukin stærðarhagkvæmni og ný tækifæri til uppbyggingar og vaxtar.

    Fyrirhugað er að flytja starfsemina í nýja og nútímalega framleiðsluaðstöðu, þar sem áhersla verður lögð á aukin gæði, öfluga framleiðslu og áframhaldandi framþróun.

    Vörumerking er BRC-vottað fyrirtæki og er framtíðarsýn að Sigurplast fari í sambærilega gæðavottun.

    Allir reikningar vegna Sigurplasts verða hér eftir gefnir út af Vörumerkingu, kt 560771-0109.

    Fyrir frekari upplýsingar:
    Páll Elísson – palli@vorumerking.is

    Hafðu samband

    Finndu réttu lausnina.

    Við aðstoðum þig við að velja merkingar og umbúðir sem henta vörunni þinni.

  • Jafnlaunastefna Vörumerkingar

    Vörumerking · Fréttir

    Jafnlaunastefna Vörumerkingar

    Hér má sjá jafnlaunastefnu Vörumerkingar en unnið er í samræmi við IST 85 2012.

                                                 Stefna 2023-2026

    Krafan um að allt starfsfólk á vinnumarkaði án tillits til kynferðis, uppruna eða annarra þátta sem ekki varða hæfni launafólks eða verðmæti vinnuframlags þess er ein af grundvallarkröfum samfélagsins. Í Vörumerkingu eiga allir að njóta mannréttinda, virðingar og jöfnuðar. Starfsfólk skal metið að verðleikum og stuðlað að því að sem flestir einstaklingar nýti hæfni sína og þekkingu sem best, allt við hæfi hvers og eins. Jafnréttisstefna Vörumerkingar er unnin eftir ákvæði laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020 https://www.althingi.is/lagas/nuna/2020150.html þar sem m.a. kemur fram að gæta skuli jafnréttissjónarmiða og vinna að kynjasamþættingu. Tekið skal mið af þessu ákvæði við stefnumótun, ákvarðanatöku og áætlanagerð. Í jafnréttisáætluninni eru sett fram markmið og aðgerðir sem lúta að ákvæðum jafnréttislaga. Hluti áætlunarinnar er einnig stefna og viðbragðsáætlun Vörumerkingar vegna eineltis, kynferðislegrar áreitni, kynbundinnar áreitni, ofbeldis eða annarrar ótilhlýðilegrar hegðunar og viðverustefna.

    Hafðu samband

    Finndu réttu lausnina.

    Við aðstoðum þig við að velja merkingar og umbúðir sem henta vörunni þinni.

  • Vörumerking nýtt logo

    Vörumerking nýtt logo

    Vörumerking · Fréttir

    Vörumerking nýtt logo

    Vörumerking nýtt logo
    • Vörumerking nýtt logo
      • Allt er breytingum háð. Ein af breytingum sem félög og fyrirtæki ráðast í eru vörumerki eða lógó sinna félaga og nú er komið að slíkum breytingum hjá okkur í Vörumerkingu. Þannig fær Vörumerking nú nýtt og uppfært lógó sem unnið var í góðu samstarfi við hönnunarstofuna Jökulá. Breyting sem við hjá Vörumerkingu erum afar sátt við og er um leið nauðsynleg uppfærsla upp á skalanleika að gera gagnvart öllum tækjum og tólum nútímans. Við höldum fast í bláa litinn okkar sem og V-ið góða í Vörumerkingu sem hefur verið mjög sterkt lógó í áranna rás. Þess má geta að Vörumerking var stofnað árið 1962 og verður 60 ára á árinu. Nýtt lógó Vörumerkingar lítur svona út:  
      • Enska: Through the years it is obvious that changes will occur. One of the changes that companies go through is to change their brands or logos and now it is our time at Vörumerking to change our logo. Vörumerking will now launch its new and updated logo. This change, which we all at Vörumerking are very pleased with, is very good and needed update concerning scaling towards all nowadays tools and techniques. Even though we change we are very firm to continue with our blue colour in our logo and the letter „V“ as the strong sign for a Vörumerking which has been a very strong logo through the years. At this moment we also allow us to mention that in 1962 Vörumerking was founded which means Vörumerking will celebrate its 60 years anniversary later this. Last but not least, this is the new logo of Vörumerking.

    Hafðu samband

    Finndu réttu lausnina.

    Við aðstoðum þig við að velja merkingar og umbúðir sem henta vörunni þinni.

  • Óbreytt útlit á mörkuðum 2022, enn mikið ójafnvægi

    Vörumerking · Fréttir

    Óbreytt útlit á mörkuðum 2022, enn mikið ójafnvægi

    Óbreytt útlit á mörkuðum 2022, enn mikið ójafnvægi  

    Ágæti viðskiptavinur

    Líkt og við höfum áður komið inn á, bæði í samtali við ykkur sem og í okkar fréttafærslum, þá hafa átt sér stað miklar verðbreytingar á árinu 2021. Þessar verðbreytingar eiga rætur sínar að rekja til afleiðinga heimsfaraldursins þ.e. skortur á hrávöru sem leiddi af sér miklar hækkanir á hrávöruverði. Aðstæður sem eru fordæmalausar (force majeure) og ástand sem við höfum hvorki séð fyrir né upplifað áður. Því miður er það svo að ekki er útlit fyrir að framboð á mörkuðum nái jafnvægi við eftirspurn núna í ár. Óhjákvæmileg afleiðing þessa ástands er áframhaldandi hækkandi vöruverð. Vissulega mismunandi eftir vöruflokkum og eðli þeirra, samanber mikil þróun yfir í pappa, hækkun í plasti og tafir jafnvel skortur á áli og reyndar lengri afgreiðslutímar í öllum vöruflokkum sem kallar á meiri fyrirvara pantanna.

    Til viðbótar við skort og hækkun á hrávöru hafa ýmsir kostnaðarliðir hækkað t.d. flutningar og orkuverð. Þannig er verðbólga farin að gera vart við sig í löndunum í kringum okkur í Evrópu sem og í Bandaríkjum. Síðan eins og fyrr segir hefur orkuverð rokið upp erlendis og við slíkar aðstæður hafa sumir af okkar birgjum gripið til þessa ráðs að innleiða nýtt gjald sem þeir kalla „álag á orkuverð“. Hræðumst við reyndar m.v. þróun orkuverðs erlendis að þetta nýja gjald fari eins og eldur um sinu milli vöruframleiðenda. Í verstu tilfellunum erum við að sjá fram á miklar tafir og jafnvel vöruskort a.m.k. lengri afgreiðslutíma. Þá tala flestir birgjar í þá veru að einungis gildi vöruverð til mjög skamms tíma. Af þessum sökum er engan veginn hægt að gefa út vöruverð langt fram í tímann né fyrir heila vertíð, en það er skýrt dæmi um breytingu og ekki þekkt frá fyrri tíð.

    Samantekið er óhætt að segja að markaðir séu enn í ójafnvægi og enn leit að jafnvægi og ekki líkur á að það muni nást á árinu 2022. Allt útlit er því fyrir að ástand á mörkuðum í ár muni verða óbreytt frá árinu 2021, sem sagt fordæmalausar aðstæður (force majeure) með áframhaldandi hækkunum, stuttum gildistíma vöruverða, töfum og jafnvel vöruskorti. Nú sem endranær munum við hjá Vörumerkingu þrátt fyrir allt gera okkar með að verjast við þessar aðstæður en jafnframt ljóst að þær eru mjög krefjandi. Áralangt samstarf við mjög breiðan hóp sterkra og rótgróinna birgja hjálpar hins vegar mikið við þessar erfiðu aðstæður.

    Að lokum, við leggjum okkur fram um að upplýsa viðskiptavini um ástandið eftir því sem fréttir berast og gerum okkar besta að birta fréttir. Vakni spurningar ekki hika við að hafa samband við þinn tengilið eða senda tölvupóst á pantanir@vorumerking.is og við förum yfir málin með þér og gerum okkar besta til að leysa úr stöðunni.

    Vörumerking ehf

    Suðurhraun 4A, 210 Garðabær

    414-2500 / pantanir@vorumerking.is / www.vorumerking.is

    Þjónusta – Gæði – Áreiðanleiki

    Hafðu samband

    Finndu réttu lausnina.

    Við aðstoðum þig við að velja merkingar og umbúðir sem henta vörunni þinni.

  • Miklar hækkanir vegna ástands á hrávörumarkaði hafa komið á daginn

    Vörumerking · Fréttir

    Miklar hækkanir vegna ástands á hrávörumarkaði hafa komið á daginn

    Miklar hækkanir vegna ástands á hrávörumarkaði hafa komið á daginn

    Þróunin á hrávörumarkaði á undanförnum mánuðum hefur falið í sér töluverðar kostnaðarhækkanir og í mörgum tilfellum farið fram úr verstu spám. Þannig hafa hækkanir verið að berast okkur vikulega frá okkar fjölmörgu birgjum og höfum við óhjákvæmilega þurft færa þær hækkanir út í verðið á okkar vörum. Því miður er ekki séð fyrir endann á þessari þróun og þörf á reglulegri endurskoðun meðan að þetta ástand varir. Fjölmargir flokkar hafa hækkað verulega vegna skorts á hrávöru og hækkunar á flutningum, svo sem plast, pappír, ál einnig aðrir hrávöruflokkar eins og olíu, timbur, stál, og gler svo nokkrir hrávöruflokkar séu nefndir.

    Þessu til viðbótar hafa tafir gert mjög mikið vart við sig, með mun lengri pöntunar- og afgreiðslutíma, bæði vegna fyrrgreinds skorts á hráefni og svo hafa flutningar farið úr skorðum. Af þeim vörutegundum sem við vinnum hvað mest með þá hefur plast farið lang verst út úr þessu ástandi og telja hækkanir í mörgum tugum prósenta. Höfum við jafnvel fengið fregnir af framleiðendum sem hafa valið að stöðva framleiðslu.

    Vegna þessa ástands þá viljum við ráðleggja og hvetja ykkur kæru viðskiptavinir að panta vörur með mun meiri fyrirvara en áður í þeim tilgangi að reyna að komast hjá vöruskorti þar sem sú hætta er til staðar.

    Eins og áður þá viljum við leggja okkur fram við að upplýsa okkar viðskiptavinir um ástandið og eftir því sem fréttir berast okkur munum við gera okkar besta til að birta fréttir um það hér. Ef spurningar vakna ekki hika við að hafa samband við þinn tengilið eða senda tölvupóst á netfangið pantanir@vorumerking.is og við förum yfir málin með þér og gerum okkar besta til að leysa úr stöðunni.

    Þjónusta – Gæði – Áreiðanleiki

    Vörumerking ehf, Suðurhraun 4A, 210 Garðabæ, 414-2500 – www.vorumerking.is

    Hafðu samband

    Finndu réttu lausnina.

    Við aðstoðum þig við að velja merkingar og umbúðir sem henta vörunni þinni.

  • Takmarkanir vegna covid aðstæðna

    Takmarkanir vegna covid aðstæðna

    Vörumerking · Fréttir

    Takmarkanir vegna covid aðstæðna

    Takmarkanir vegna covid aðstæðna

    Verslun og söludeild Vörumerkingar eru lokuð sökum Covid-aðstæðna. Vinsamlegast beinið fyrirspurnum á netfangið pantanir@vorumerking.is eða í síma: 414-2500 Vegna sóttra sendinga vinsamlegast hringið í ofangreint númer eða ýtið á bjöllu. Verum ábyrg og munum að við erum öll sóttvarnir. We are closed due to Covid circumstances. Please contact us at pantanir@vorumerking.is Or call 414-2500 Stay healthy and be responsible

    Hafðu samband

    Finndu réttu lausnina.

    Við aðstoðum þig við að velja merkingar og umbúðir sem henta vörunni þinni.

  • Varúðarmerkingar / Leiðarvísar / COVID merkingar

    Vörumerking · Fréttir

    Varúðarmerkingar / Leiðarvísar / COVID merkingar

    Varúðarmerkingar / Leiðarvísar / COVID merkingar

    Kæru viðskiptavinir.

    Á erfiðum tímum viljum við hjá Vörumerkingu vekja athygli á okkar lausnum sem geta aðstoðað þig, hvort sem um er að ræða varúðarmerkingar, leiðarvísar eða sértækar merkingar vegna Covid:

    • Almennir varúðarborðar
    • Lokunarborðar
    • Borðar sem leiðbeina gönguleiðir
    • Límmiðar og merkingar í gólf
    • Sætanúmer
    • Áminningar um fjarlægð v/Covid
    • Hvers konar límmiða sem aðstoða okkur í núverandi ástandi
    • Aðrar lausnir

    Leitaðu til okkar í Vörumerkingu eftir upplýsingum og ráðgjöf og við vinnum með þér að góðum lausnum!

    Hafðu samband

    Finndu réttu lausnina.

    Við aðstoðum þig við að velja merkingar og umbúðir sem henta vörunni þinni.

  • Vörumerking lokar söludeild tímabundið vegna Covid. Hafið samband beint við sölufulltrúa.

    Vörumerking · Fréttir

    Vörumerking lokar söludeild tímabundið vegna Covid. Hafið samband beint við sölufulltrúa.

    Söludeild Vörumerkingar eru lokuð sökum Covid-aðstæðna. Sölumenn eru við símann og hlakka til að heyra frá þér. Vonum að við mætum skilningi á þessari aðlögun okkar og leggjum okkur fram við að láta hlutina ganga upp. Hægt verður að sækja vöru í afmarkað svæði í afgreiðslu eða senda beint til viðskiptavinar. Vinsamlegast beinið fyrirspurnum á netfangið pantanir@vorumerking.is og vorumerking@vorumerking.is eða s. 414-2500. Verum ábyrg og munum að við erum öll sóttvarnir.

    Vinsamlegast beinið fyrirspurnum á netfangið 

    pantanir@vorumerking.is og vorumerking@vorumerking.is eða s. 414-2500

    Verum ábyrg og munum að við erum öll sóttvarnir.

    Hafðu samband

    Finndu réttu lausnina.

    Við aðstoðum þig við að velja merkingar og umbúðir sem henta vörunni þinni.

Vörumerking

Segðu okkur frá verkinu.

Við förum yfir beiðnina og höfum samband um næstu skref.

Upplýsingarnar eru notaðar til að svara beiðninni.

Vörumerking