Myndræn framsetning · Sýnishorn
Vörur og lausnir

Thermal miðar / prentarar

Aðgöngumiðar fyrir viðburði og brottfararspjöld fyrir flug og siglingar.

Við hjálpum þér að velja miða sem henta prentaranum og lestrarbúnaðinum sem þú notar.

Fá tilboð
StrikamerkiHitaprentunHitaprentararAðgöngumiðarBrottfararspjöldStafræn prentunQR-kóðar

Valkostir og útfærsla.

HitaprentunKarton fyrir beina hitaprentun án litaborða eða hitaprentun með litaborða.
Aðgöngumiðar Miðar fyrir tónleika, leikhús, bíó og íþróttaviðburði. Í boði eru númerun, gat, útfærsla fyrir ljósnema og öryggismerki með heilmynd.
BrottfararspjöldSpjöld fyrir flug og siglingar, með segulrönd eftir þörfum.

Gott að vita.

Hver er munurinn á beinni hitaprentun og hitaprentun með litaborða?

Í beinni hitaprentun dökknar hitanæmt yfirborð miðans þar sem prenthausinn hitar það. Við hitaprentun með litaborða flytur hitinn lit af borðanum yfir á miðann.

Er hægt að fá mismunandi upplýsingar á hvern miða?

Já. Hægt er að númera aðgöngumiða. Í stafrænni límmiðaprentun getur hver límmiði fengið sitt eigið strikamerki, QR-kóða, texta eða mynd.

Hvað þarf að fylgja tilboðsbeiðni?

Tilgreindu notkun, stærð, áætlað magn og hvenær þú þarft miðana. Taktu fram ef þú þarft sérstakan frágang, svo sem gat, númeringu eða segulrönd.

Vörumerking

Segðu okkur frá verkinu.

Við förum yfir beiðnina og höfum samband um næstu skref.

Upplýsingarnar eru notaðar til að svara beiðninni.

Vörumerking