
Wrap-Around & banding
Við prentum wrap-around merkingar sem ná allan hringinn utan um flöskur og aðrar drykkjarumbúðir. Þannig nýtist allt ummálið fyrir vörumerkið, myndmál og vöruupplýsingar. Við bjóðum einnig upp á banding-filmur og -miða í ýmsum útfærslum, filmur fyrir matvæla- og sælgætisumbúðir og ýmsar gerðir af varúðarborðum.
Fá tilboðGott að vita.
Hver er munurinn á wrap-around og banding?
Wrap-around merking nær allan hringinn utan um drykkjarumbúðir og gefur pláss fyrir hönnun og vöruupplýsingar. Banding er borði úr filmu eða miða sem er settur utan um staka vöru eða heldur nokkrum vörum saman í einni pakkningu.
Hvað þarf að koma fram fyrir tilboð?
Segðu okkur hvers konar vöru eða umbúðir á að merkja, hver málin eru og hversu margar merkingar þú þarft. Ef merkingin er sett á í pökkunarvél er gagnlegt að vita hvaða vél er notuð.
Þarf ég að skila prentgögnum með tilboðsbeiðni?
Nei. Þú getur byrjað á lýsingu á vörunni og umbúðunum og sent prentgögn þegar útfærslan liggur fyrir.
Get ég endurpantað fyrra verk?
Já. Sendu okkur vörunúmer úr fyrri pöntun og láttu vita ef stærð, hönnun eða magn hefur breyst.


