Vörumerking · Fréttir

Brynjar framkvæmdastjóri sölusviðs Samhentra og Vörumerkingar

Samhentir og Vörumerking hafa gert skipulagsbreytingar á sölustarfsemi félaganna. Brynjar Viggósson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri sölusviðsins. Sölusviðið ber ábyrgð á sölu allra afurða Samhentra og Vörumerkingar svo sem umbúðum fyrir sjávarútveg, matvælavinnslu, garðyrkju, veitingahús og mötuneyti ásamt mjög breiðri vörulínu annarra vara.

Með þessari skipulagsbreytingu er lögð aukin áhersla á samhæfingu og skilvirkni sölu og þjónustu Samhentra og Vörumerkingar. Á sölusviðinu starfa alls um 20 manns.
Áður starfaði Brynjar hjá Eimskip í um 18 ár og starfaði þar síðastliðin ár sem forstöðumaður söludeildar áætlanaflutninga. Þar á undan starfaði Brynjar hjá Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna. Brynjar er með BSc í sjávarútvegsfræðum frá Háskólanum á Akureyri og MBA frá The Hague University. Brynjar er kvæntur Guðrúnu Bergsteinsdóttur lögmanni og eiga þau þrjú börn.

Við bjóðum Brynjar velkominn til starfa!

Hafðu samband

Finndu réttu lausnina.

Við aðstoðum þig við að velja merkingar og umbúðir sem henta vörunni þinni.

Vörumerking

Segðu okkur frá verkinu.

Við förum yfir beiðnina og höfum samband um næstu skref.

Upplýsingarnar eru notaðar til að svara beiðninni.

Vörumerking