Vörumerking · Fréttir

Fullkomin stafræn prentvél

Fullkomin stafræn prentvél

Indigo

Um þessar mundir er Vörumerking að taka í notkun nýja prentvél sem er stafræn vél af gerðinni WS6600 frá Hewlett-Packard / INDIGO.

Vélin sem er af nýjustu kynslóð stafrænna prentvéla, er með svonefndum „in-line-primer“ sem gerir henni kleift að prenta á mismunandi efni. Vélin getur prentað á hefðbundinn pappír, plastefni, ál og fleira. Hún mun þó einkum vera notuð til framleiðslu á límmiðum og öðrum  umbúðamerkingum. 

Með vélakaupunum hyggst Vörumerking auka fjölbreytni umbúðamerkinga. Vélin hentar einstaklega vel fyrir smá upplög þar sem ekki er þörf á klisjum við stafræna prentun.  Afgreiðslutími styttist verulega. Með þessari viðbót er stórt skref stigið inn í framtíðina.

 Tilkoma vélarinnar er lokahnykkur endurskipulagningar á Vörumerkingu. Fyrirtækið er búið að vera leiðandi fyrirtæki á sínu sviði í yfir 50 ár ætlar að halda áfram að þjónusta viðskiptavini sína með gæðavöru á góðu verði.   segir Bjarni Hrafnsson framkvæmdastjóri Vörumerkingar.

Hafðu samband

Finndu réttu lausnina.

Við aðstoðum þig við að velja merkingar og umbúðir sem henta vörunni þinni.

Vörumerking

Segðu okkur frá verkinu.

Við förum yfir beiðnina og höfum samband um næstu skref.

Upplýsingarnar eru notaðar til að svara beiðninni.

Vörumerking