
Vörur og lausnir
Tappar & dælur
Tappar, dælur og kranar fyrir flöskur og brúsa.
Hjá Vörumerkingu færðu tappa í ýmsum stærðum og litum, sápudælur, úðadælur og krana. Hvort sem þú ert að leita að smellutappa fyrir litla sósuflösku, tappa með innsigli fyrir PET-flösku eða dælu fyrir 5 lítra brúsa, hjálpum við þér að finna útfærslu sem passar við ílátið og hentar notkuninni.
Fá tilboðTapparTappar með innsigliSkömmtunardælurSápudælurHreinlætisvörurÚðadælurKranar fyrir brúsaSmellutapparSporttappar
Vöruúrval































Gott að vita
Passa allir tappar með sama þvermál á sömu flöskuna?
Ekki endilega. Stúturinn og skrúfgangurinn þurfa líka að passa. Mynd, mál eða sýnishorn af ílátinu hjálpar okkur að finna réttu útfærsluna.
Eru til tappar með innsigli fyrir PET-flöskur?
Já. Í vöruúrvalinu eru svartir og hvítir 28 mm tappar með innsigli fyrir PET-flöskur. Við hjálpum þér að athuga hvort þeir passi á þína flösku.
Er hægt að fá dælu fyrir 5 lítra brúsa?
Já. Í úrvalinu er 40 mm dæla fyrir 5 lítra brúsa. Sendu okkur upplýsingar um stútinn svo við getum athugað hvort dælan passi.


